Góður laugardagur
Fyrst fór Andri með félögunum í skrýmsladrápsleiðangur upp á Skeið, Frelsisher Flóa og Skeiða er virkur enn einu sinni, en karlinn dólaði heima, opnaði út í garð og hlustaði á Linton Kwesi Johnson, sem er kannski ekki alveg í anda úthverfis á Selfossi á laugardegi á miðju sumri. Um kvöldið grillað með fjölskyldunni. Um að gera að nýta þessa góðu geitafórnaraðstöðu sem ég hef komið mér upp. Allt gekk upp, bæði kjöt og eftirréttur. Í dag mælir Feðgabyggð með jógúrtís (ab vanillujógúrt, 1 l. ) með þeyttum rjóma (1/4 ltr.)og hlynsírópi, (eftir smekk) sem gefur frískandi bragð á móti grilluðum ananas með kanilsykri - og svo getur verið vinsælt hjá krökkum að skera skurð á hýði á banana, stinga súkkulaðibitum undir hýðið - ég mæli með þremur bitum á hvern banana - og skella á grillið, svona með. Og þegar kartöflur eru nýjar eru þær sælgæti með grilluðu lambakjöti og dugir alveg að sjóða þær. Ef til vill væri gaman að smjörsteikja þær svolítið. Þó ég hafi ekki gert það í dag. Loppa var hrædd og faldi sig, en gestirnir voru varla farnir þegar hún skreið mjálmandi fram úr felustað sínum. Og þurfti talsvert af strokum, ást og umhyggju. Eins og hún væri hrædd um að gestagangurinn væri henni að kenna. En hún jafnaði sig furðu fljótt.

