31.5.02

Eitthvað hefur sljákkað í Halldóri okkar Ásgr. eftir að hann hitti Arafat. En kannski er það einmitt það sem vantar þarna niðurfrá til að sætta þá, ...vanan framsóknarmann! Allavega ættu þeir að vera ýmsu vanir eftir að hafa árum saman setið í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og þá ætti sáttavinna þarna niðurfrá að vera lítið mál. Líklega verður Arafat ekki Leader of the Palestinian Progressive Party eftir þennan leiðangur. Og eftir andlát SÍS er ekki lengur hægt að þagga niður í erfiðum ungum hryðjuverkamönnum með því að gera þá að kaupfélagsstjórum á einhverjum útnesjum. En Halldór okkar ætti að leggja sig fram, það eru nú friðarverðlaun Nóbels í boði fyrir réttan mann.

Þessi hugmynd mín að steypa súkkulaðikerlingar heldur fyrir mér vöku. Stundum eiga kunningjar mínir það til að hverfa lengi og sjást ekki, en þegar ég hitti þá aftur og spyr hvar þeir hafi verið undanfarið er svarið gjarna:"Ég er kominn með kerlingu" og svo horfa þeir á mig afsakandi eins og þetta sé sjúkdómur sem þeir hafi fengið. Að vísu eru sumir hreyknir eins og bændur sem hafa eignast nýjan traktor. Kerling merkir í mínum huga heimilistæki, lítil tunna á þremur hjólum eins og Nilfisk-ryksuga með peru ofan á sem blikkar og segir bíb-bíb þegar ég kem heim úr vinnunni. Ég hendi í hana óhreinum sokkum, skipa henni að færa mér kaffi, og hún sinnir allri minni húsverkaþjónustu. Svo á morgnana opna ég á henni magann og fæ hreina sokka, nærbuxur og skyrtu. Því miður fyrir þær konur sem gera út á svona í makaleitinni þá er verið að hanna kerlinguna: Það er stutt í að heimilisvélmenni komi á markað. Þess vegna er þessi súkkulaðihugmyd ekki svo galin: Steypum nokkrar til að selja í steggjapartý til dæmis...sendum þær í ómerktum brúnum pappírspoka til þeirra...nú og svo get ég farið að hlakka til þess að hitta kunningjana og sjá þá brosandi út að eyrum með súkkulaði út á kinn segjandi "Ég var að fá mér konu" og það í engum afsökunartón!

30.5.02

Ég spurði lækni um það hvernig þessi súkkulaðijafna gæti gerst og þetta er svarið sem ég fékk:
En ég get hugsað mér líkingu sem lítur einhvernvegin svona út: Til þess að borða 750gr af súkkulaði þarf kvenmaður að vera í sérstöku tilfinningalegu ójafnvægi sem kallar á fleira en bara súkkulaði, sem sagt vökva, helst gosdrykk eða kaffi. Þegar er svo búið að sporðrenna 750g af súkkulaði og einum lítra af vökva þá kallar heilinn á eitthvað matarkyns sem er fúslega rennt niður til að reyna að vega upp slæma samvisku af fyrra átinu. Þar með ertu komin upp í rúmlega 2kg af mat sem innihalda segjum ca 2000 auka kcal, sem gera tæplega 200 gr af fitu, þetta í tíu daga, með mis löngu millibili verða 2 kg af kvennmanni.

750 gr. súkkulaði = 2 kg kvenmaður.
Ef maður hellir í hana 1 ltr. af brennivíni, ....nei það vita allir hvað þá gerist.
1 ltr. af bensíni...ætli það geti þa´búið til tvo lítra?

Einhver hefur þegar boðist til að leggja til skrokkinn í mótið. Nú vantar mig bara þrjú tonn af sandi.

Einhver spurði mig hvernig á því stæði að 750 grömm af súkkulaði gætu orðið tvö kíló af konu. Þetta er athyglisverð spurning, bæði eðlisfræðilega og næringarfræðilega, en gefur líka ýmsa mögulega. Úr 50 kílóum af súkkulaði gæti ég til dæmis fengið alveg mátulega búkonulega vaxinn kvenmann. Þá þarf ég súkkulaði...og stóran pott. Ég gæti fengið gamla þvottapottinn hennar mömmu ..enginn er að nota hann þessa dagana, ...svo þarf ég að skreppa í Bónus og kanna hvað súkkulaði kostar. Fæ ég nokkuð verri kvenmann ef ég nota Bónus- súkkulaði? Þetta hljómar eins og skammaryrði..."Æi þetta er bara bónus-súkkulaði gella" Einhvers staðar er uppskrift, var ekki ein góð í einhverri gamalli strumpabók þar sem Kjartan galdrakarl bjó eina til? Hvar fæ ég mótið? Mig vantar einhverja dömu til að leggjast í sandbing, þá get ég búið mótið til. Sú aðferð var nú notuð til að búa til fallstykki og kanónur í gamla daga, ætti að duga til að smíða eins og eina kerlingu....Hvað á ég að láta í fyllinguna? Mannvit eð marsípan? Ég er kennari, ætti ekki að vera í vandræðum með að tækna sæmilegt mannvit í eins og eina manneskju, þetta er nú eins konar mannvitstækni sem ég starfa við. Mannvitstæknir...hmm. Skemmtilegt starfsheiti. Jæja þetta dugar ekki..skreppa í búðirnar, sækja pottinn, ná í sand, fara á bóksafnið...ég er búinn að finna mér skemmtilegt hobbý fyrir sumarið.

29.5.02

Í hvert skipti sem ég kveiki á sjónvarpsfréttum RÚV segi ég við son minn: "Jæja hvað skyldi Halldór Ásgrímsson hafa sagt eða gert í dag?" Það er meira hvað fréttstofa RÚV hampar Halldóri: Það er greinilegt að Sjálfstæðismenn hafa í hyggju að halda áfram samstarfi við Framsókn eftir kosningar. Þá er bara að nota Göbbelsaðferðina og segja sama hlutinn nógu oft. Ef fólk heyrir nafnið hans Halldórs nógu oft þá mun það styðja hann: Það er erftirtekarvert að Guðni Ágústsson hefur ekki sagt eða gert neitt viturlegt eins og hann einn kann svo vikum skiptir og Siv Friðleifs hefir bara ekki sést síðan í áramótaskaupinu. Hvorki í kjól né dragt. Og nú er Halldór kominn til Ísraels og Palestínu að tala við ráðamenn. Það var einmitt það sem vantaði: Formann stjórnmálaflokks sem ávallt hefur borið kápuna á báðum öxlum. Hann ætti allavega að geta kennt þeim það. Við hugsum kannski að það hafi lítið að segja að Halldór fari þarna niðreftir og segi "Jú nó jú sjúdnt dú thiss Sharon" en ég segi bara eins og hún amma mín, hún Marta í Hellir: "Lítil hross hafa líka stert" En þa ðhefur einn kost að fylgjast með fréttunum: Við vitum sko að Halldór mætir í vinnuna. Fréttastofa RÚV er eins og stimpilklukka á hann.

28.5.02

Ég stend í því þessa dagana að reyna að finna sumarvinnu handa atvinnulausum unglingi, minnugur þess tíma þegar ég stóð sjálfur í þessu stímabraki. Ég mun ávallt vera þeirrar skoðunar að sumarvinna skólafólks sé holl og góð lexía, ég lít fyrst og fremst á hana sem slíka. Verst að það skuli vera búið að rífa síðutogarana gömlu og breyta Júpíter í loðnupramma. Það hefði átt að halda þeim við og láta þá dóla á sumrin sem skólaskip. Það hefði verið bæði góður sögutími og mátulegt erfiði ungum mönnum og konum sem vildu, í anda jafnréttis. Það þýðir ekki annað en að vera að gera eitthvað, meðan skólarnir eru ennþá gíraðir inn á síldveiðarnar, þó síldin hafi varla sést á sumrin síðan ´68. Þetta allt verið ómögulegt síðan síldin hvarf. Ég held því fram að ef síldin hefði verið, þessi holla fæða, þá hefði hippakynslóðin ekki orðið til. Þessi uppsteytur í liðinu er bara D-vítamínskortur og fólk ætti að taka meira lýsi.

26.5.02

Jæja..þá eru afstaðnar enn einar kosningarnar með uppákomum sem komu á óvart, sigrum og ósigrum út um landið, sveiflum til hægri og vinstri. Fjölmiðlarnir létu eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefði lent í meiri háttar krísu, að tapa bæði Reykjavík og víða annars staðar. Þeir eru ekki í neinni kreppu, þeir hafa bara tapað kosningum og þurfa að læra að höfða til kjósandans eins og hann sé sæmilega vel gefinn einstaklingur sem hafi að minsta kosti gripsvit. En flokkurinn sem er í kreppu núna er greinilega vinstri grænir. Þeir þurfa verulega að endurskoða afstöðu sína þegar það hefur sýnt sig að sameinað framboð andstæðinga Sjálfstæðisflokksins er öflugt. Þeir þyrftu að gæta þess að verða ekki bara einhverjir sérvitringar úti í horni, hrópandi líkt og fræg kona forðum "Engi er eg hornkerling eður púta" og snúa sér að alemnnilegri barattu ef þeir eiga ekki að þurrkast út eða kjósendurnir að bía ofan á þá endanlega.

25.5.02

Það er ekkert annað...tvöfalt geim í sjónvarpi kvöldsins, júróvisjón og kosningasjónvarp. Spenna og fjör fram eftir nóttu. Ég er búinn að kjósa en segi ekki hvað, og júróvisjón er ekki endilega viðburður ársins í mínu lífi´. Ég vitna í son minn sem sagði einu sinni...það er skrítið að það er eins og þetta séu alltaf sömu lögin og í fyrra. Talandi um í fyrra....það er sko ekki fullreynt með þessa menn. Bráðum verður trúbadúr úr Vestmannaeyjum alveg atvinnulaus og vantar eitthvað að gera. Fáum lagahöfundinn frá í fyrra og þennan ágæta söngvara til að fara saman og syngja næsta ár: "And now..from Iceland...Bummer Brothers." Hljómar vel. Lagið gæti til dæmis heitið "Það er bara ein leið - upp" Jæja....ég er farinn út í búð að kaupa gosið og snakkið.

Nú heyrist mér Bandaríkjamenn vera að banna frumbyggjaveiðar. Þetta á víst að vera veiðar frumbyggja á hvölum en orðið er nú hálf klaufalegt á íslensku. Stunduðu þeir ekki sjálfir einu sinni frumbyggjaveiðar, það er að segja veiðar á indíánum og svertingjum til að selja í þrældóm? Og útrýmdu nánast vísundunum með því að skjóta þá sér til skemmtunar út um lestarglugga? Batnandi manni er best að lifa. Frumbyggjar eru víst fólk sem hefur búið á einhverjum tilteknum stað frá upphafi....en á Íslandi hafa aldrei verið frumbyggjar, bara landnámsmenn. Auðvitað fer það eftir því hvaða merkingu við leggjum í orðið...ég má víst til dæmis ekki fara niður á Stokkseyri til að veiða frumbyggja ef það er bannað samkvæmt alþjóðasamningum. Slæmt. En hugmyndin er óneitanlega freistandi...

Þá er ég farinn að blogga. Sniðug annars þessi blogg og hvað fólk getur gert við þau. Innan tíðar verða haldin námskeið í bloggi, listamenn yrkja bloggljóð og fólk er farið að tala um hina nýju blaðamennsku þar sem fréttir berast fyrr með bloggi en með hefðbundnum fréttamiðlum. Fólk sem enginn nennir að hlusta á mun fá útrás fyrir sinn hluta af þjóðarsálinni með bloggi, nasistar munu nota blogg til að segja skoðun sína...en þau gefa öllum kost á að segja hana og fljótlega munu kennarar breyta bloggum í eitthvað hrútleiðinlegt eins og þeim einum er lagið og öllu sem þeir koma nálægt. Svo verða settar bloggreglur um vel samin blogg og áhugalöggur um almenna siðsemi munu heimta að blogg verði bönnuð eins og allt annað, kvartað verður hástöfum undan að unglingar séu síbloggandi og svo munu fréttir koma um að ljótir karlar séu að nota blogg til að tæla unglingsstúlkur. Merkilegt hvað það virðist vera auðvelt að tæla konur annars en það er efni í annað blogg. Blogg eru áreiðanlega líka góð fyrir fólk sem á enga vini og fær ekki sfvör við tölvupósti sem það sendir kunningjunum. Það verður gaman að fylgjast með þessu.