2.6.04

Víða dustað rykið

Það var þá ekki bara í Feðgabyggð sem ryk var dustað. Forseti vor hefur dustað rykið af tilteknu ákvæði stjórnarskrár. En svo....þó ég sé ekki meðal elstu manna þá man ég ekki til annars þann tíma sem ég hef fylgst með forsetakosningum, og það er síðan Kristján Eldjárn var kosinn, hefur hver einasti forsetaframbjóðandi sem ég hlustaði á verið spurður um það hvort hann muni beita þessu ákvæði, og allir hafa sagt já. Enginn hefur fram að þessu rengt þetta ákvæði, og kannski rétt að minna á að kjörnir þingmenn hafa lagt eið að því að virða stjórnarskrána, ekki að því að rengja hana. Eða misvirða. Ég býst við að þjóðin bíði núna spennt eftir því að heyra í Davíð. Nema hann flaggi Hannesi Hólmsteini, svona til að byrja með.
Ekki það að ég hafi búist við þessu, það gerði ég reyndar ekki.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home