16.5.04

Annar í Evróvisjón

Í gamla daga hélt fólk hátíðir til nokkurra daga. Jólin tóku þrjá til fjóra, áramótin tvo, páskar og hvítasunna tvo, það var annar í öllu. En með nýjum hátíðum gleymdist þessi góði siður. Ekki veitti þó af, því á Íslandi eru tveir dagar sér í lagi sem verða þynnkulegir, dauðir og daprir. Annar er nýársdagur, þar sem þynnkan og skaupafýlan lekur af þjóðinni. Hinn er annar í Evróvisjón, sem markast af svipaðri fýlu. Og íslendingar, sem leggja svo mikið upp úr því að sanna sig meðal menningarþjóða verða að naga hnúana yfir að fá framan í sig ár eftir ár að vera annarlegur útkjálki sem fær atkvæði frá nágrönnum upp á kunningsskap. Eins og gengnir út úr hól og hafa ekki hugmynd um hvaða straumar eru í gangi úti í hinum stóra heimi.Sem svo birtist í leiðinlegu naggi hér heima, þar sem menn senda hver öðrum tóninn. Og nú eru Vinstri grænir líka komnir með sérstakan fúkyrðing. Hugmyndin er reyndar alls ekki slæm: Hver flokkur ætti að hafa einn starfandi sem væri undanþeginn því að biðjast afsökunar orða sinna. Slæmt að ekki skuli vera hægt að selja, verðleggja og markaðssetja luntann úr landanum.
En ég hef bara legið í leti.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home